FréttirTrueFalse/?PageId=d91c18f8-0c31-4b1f-b15e-02002c18fc4cUm sjóðinnTrueFalse/?PageId=3a690860-f207-4fa6-a93f-fe14d331521b
Um sjóðinn

Fréttir



20.02.2012 10:03

Nýr rekstrarsamningur á milli Frjálsa lífeyrissjóðsins og Arion banka

Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins og Arion banki hafa skrifað undir nýjan rekstrarsamning sem kveður á um áframhaldandi rekstur og eignastýringu sjóðsins hjá Arion banka. Stjórnin hefur látið gera ítarlega úttekt á mögulegu rekstrarformi sjóðsins til framtíðar. Mat stjórnar var að hagsmunum sjóðsins væri best gætt með því að halda áfram samstarfi við Arion banka um rekstur sjóðsins.

14.02.2012 10:57

Leiðrétting á rangfærslum um Frjálsa lífeyrissjóðinn í skýrslu úttektarnefndar

Frjálsi lífeyrissjóðurinn vill koma á framfæri leiðréttingu á rangfærslum í skýrslu úttektarnefndar sem lúta að starfsemi Frjálsa lífeyrissjóðsins.

09.02.2012 15:28

Útgreiðslur séreignarsparnaðar skerða eingöngu uppbætur á lífeyri en ekki aðrar greiðslur frá Tryggingastofnun

Ellilífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun samanstanda af ellilífeyri, tekjutryggingu, heimilisuppbót, orlofs- og desemberuppbót auk framfærsluuppbótar.

07.02.2012 15:41

Skýrsla úttektarnefndar um lífeyrissjóði

Frjálsi lífeyrissjóðurinn fagnar útgáfu skýrslu úttektarnefndar á starfemi lífeyrissjóða sem var gefin út og kynnt sl. föstudag. Skýrslan inniheldur m.a. úttekt á starfsemi lífeyrissjóða árin 2006 til 2010 og afleiðingar efnahagshrunsins á eignir sjóðanna.

03.02.2012 10:41

Vel heppnaður kynningarfundur

Arion banki bauð viðskiptavinum sínum á opinn kynningarfund í gær, 1. febrúar. Starfsmenn Eignastýringar Arion banka fóru yfir áhrif tímabundinnar lækkunar viðbótarlífeyrissparnaðar úr 4% í 2% á ráðstöfunartekjur launþega og kynntu úrval sparnaðarleiða innan bankans. Var fundurinn vel sóttur og nýttu margir fundarmenn sér ráðgjöf sérfræðinga eftir fundinn.

01.02.2012 14:14

Eignasamsetning Frjálsa lífeyrissjóðsins 31. desember 2011

Hér má nálgast eignasamsetningu Frjálsa lífeyrissjóðsins 31. desember 2011 m.v. óendurskoðað uppgjör.

31.01.2012 13:41

Góð ávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins árið 2011

Ávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins var góð á árinu 2011 og allar fjárfestingarleiðir skiluðu góðri ávöxtun á árinu m.v. markaðsaðstæður.

16.01.2012 09:43

Lækkun á vöxtum lífeyrissjóðslána

Verðtryggðir vextir lífeyrissjóðslána Frjálsa lífeyrissjóðsins lækkuðu í 3,27% frá og með 15. janúar 2012. Vextir lánanna eru endurskoðaðir á þriggja mánaða fresti og taka mið af meðalávöxtunarkröfu íbúðabréfa HFF34 síðustu þrjá almanaksmánuði að viðbættu vaxtaálagi sem stjórn sjóðsins ákveður, nú 0,6%.

20.12.2011 14:08

Frádráttarbært iðgjald lækkar úr 4% í 2% frá áramótum

Tillaga stjórnvalda um að lækka frádráttarbært iðgjald launþega í viðbótarlífeyrissparnað úr 4% í 2% hefur nú verið samþykkt á Alþingi og tekur gildi um næstu áramót. Lagasetningin kallar ekki á að sjóðfélagar þurfi að breyta núgildandi samningum um viðbótarlífeyrissparnað, heldur ber launagreiðanda að tryggja að frjálst framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldsstofni.

16.12.2011 09:40

Hátt í 5.000 manns vildu rafrænt yfirlit í stað pappírs

Í byrjun desember hvatti Arion banki sjóðfélaga með lífeyrissparnað í sjóðum í rekstri bankans að skrá sig fyrir rafrænum yfirlitum í stað pappírs. Stefna bankans í umhverfismálum er að minnka magn pappírs í útsendu efni og voru á fimmta þúsund viðskiptavinir sem brugðust við beiðninni.

22.11.2011 10:51

Frjálsi lífeyrissjóðurinn valinn besti lífeyrissjóður á Íslandi þriðja árið í röð

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið valinn besti lífeyrissjóður á Íslandi þriðja árið í röð af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE).

03.11.2011 13:42

Eignasamsetning Frjálsa lífeyrissjóðsins 30. september 2011

Hér má nálgast eignasamsetningu Frjálsa lífeyrissjóðsins 30. september 2011 m.v. óendurskoðað uppgjör. Markmiðið með birtingu á eignasamsetningu sjóðsins er að stuðla að gagnsæi til að viðhalda trausti og trúverðugleika gagnvart sjóðfélögum. Sundurliðun á eignum sjóðsins er uppfærð á þriggja mánaða fresti.

27.10.2011 13:05

Nýr vefur Frjálsa lífeyrissjóðsins

Þann 25. október sl. var tekinn í notkun nýr vefur hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum. Markmiðið með vefnum er m.a. að gera hann notendavænni og einfalda framsetningu á upplýsingum til að hann verði enn aðgengilegri fyrir sjóðfélaga og launagreiðendur.

20.10.2011 15:42

Hámarks veðhlutfall lána hækkar í 65%

Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins hefur ákveðið að hækka hámarks veðhlutfall lána sem sjóðfélögum standa til boða.

20.10.2011 13:05

Hækkun á vöxtum lífeyrissjóðslána

Verðtryggðir vextir lífeyrissjóðslána Frjálsa lífeyrissjóðsins hækkuðu úr 3,63% í 3,74% frá og með 15. október 2011.

17.10.2011 15:00

Vegið að langtímasparnaði

Framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins og rekstrarstjóri séreignarsjóðsins Lífeyrisauka skrifuðu blaðagrein ásamt framkvæmdastjórum tveggja annarra lífeyrissjóða sem birtist í Morgunblaðinu í dag 13. október.

10.10.2011 15:02

Móttaka Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka er flutt

Í sumar var gerð sú breyting að móttaka Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka flutti úr Borgartúni 19 í útibú bankans að Laugavegi 120, en einnig er nú boðið upp á verðbréfa- og lífeyrisþjónustu í útibúi bankans að Bíldshöfða 20.

29.09.2011 10:50

Heimild til fyrirframgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar hækkar

Með breytingu á lögum nr. 129/1997 sem samþykkt var á Alþingi í september var heimild til fyrirframgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar hækkuð úr 5.000.000 kr. í 6.250.000 kr.

24.08.2011 10:50

Lögfesting á greiðsluskyldu launagreiðenda til VIRK frá og með 1. september næstkomandi

Með lögum sem samþykkt voru á síðasta vorþingi var kveðið á um skyldu launagreiðenda til þess að skila 0,13% af iðgjaldastofni til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs vegna allra starfsmanna sinna.

02.08.2011 10:50

Lækkun á vöxtum lífeyrissjóðslána

Verðtryggðir vextir lífeyrissjóðslána Frjálsa lífeyrissjóðsins lækkuðu í 3,63% frá og með 15. júlí 2011.

25.07.2011 10:50

Eignasamsetning Frjálsa lífeyrissjóðsins 30. júní 2011

Hér má nálgast eignasamsetningu Frjálsa lífeyrissjóðsins 30. júní 2011 m.v. óendurskoðað uppgjör.

20.07.2011 10:44

Nýjar samþykktir Frjálsa lífeyrissjóðsins tóku gildi 1. júlí síðastliðinn

Samþykktir Frjálsa lífeyrissjóðsins sem voru samþykktar á ársfundi sjóðsins 13. apríl sl. hafa nú verið staðfestar af fjármálaráðuneytinu. Samþykktirnar tóku gildi þann 1. júlí, og má nálgast hér. Nánari upplýsingar um ársfundinn má finna hér.

15.04.2011 19:33

Niðurstaða ársfundar Frjálsa lífeyrissjóðsins

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins var haldinn 13. apríl sl. Á fundinum var m.a. kynntur ársreikningur sjóðsins fyrir árið 2010 þar sem m.a. kom fram að fjárfestingarleiðir sjóðsins skiluðu 8,1%-10,3% nafnávöxtun.

15.04.2011 15:03

Lækkun á vöxtum lífeyrissjóðslána

Verðtryggðir vextir lífeyrissjóðslána Frjálsa lífeyrissjóðsins lækka í 3,80% frá og með 15. apríl 2011.

13.04.2011 15:03

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn í dag, 13. apríl

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn í dag, 13. apríl, kl. 17:15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.

07.04.2011 15:05

Framboð til stjórnar á ársfundi

Frestur til að skila inn framboðum til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins fyrir ársfund rann út 6. apríl sl. Á ársfundinum 13. apríl. nk. verður kosið um tvo aðalmenn og tvo varamenn til tveggja ára.

04.04.2011 15:06

Framboðsfrestur til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins rennur út miðvikudaginn 6. apríl nk.

Frestur til að skila inn framboði til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins rennur út miðvikudaginn 6. apríl nk., en framboð til stjórnar skal tilkynna sjóðnum með sannanlegum hætti með a.m.k. sjö daga fyrirvara.

01.04.2011 15:06

Tillaga að breytingu á samþykktum Frjálsa lífeyrissjóðsins

Frjálsa lífeyrissjóðnum hefur borist tillaga að breytingu á samþykktum sem lögð verður fyrir ársfund sjóðsins þann 13. apríl næstkomandi. Tillagan er gerð af Jóni G. Guðbjörnssyni.

22.03.2011 15:07

Dagskrá ársfundar Frjálsa lífeyrissjóðsins þann 13. apríl

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn 13. apríl nk. kl. 17:15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.

04.03.2011 15:08

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn 13. apríl næstkomandi

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 13. apríl næstkomandi kl. 17:15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.

04.02.2011 15:10

Samkomulag um verklagsreglur vegna yfirveðsettra heimila

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er aðili að samkomulagi stjórnvalda, fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða um aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila.

13.01.2011 15:12

Hækkun á vöxtum lífeyrissjóðslána

Verðtryggðir vextir lífeyrissjóðslána Frjálsa lífeyrissjóðsins hækka úr 3,82% í 3,97% frá og með 15. janúar 2011.

Til baka