Ársfundur
og rafræn kosning í stjórn
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 3. júní nk. kl. 17:15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.
Allir sjóðfélagar eru velkomnir á fundinn en einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í gegnum vefstreymi. Kosning til stjórnar og atkvæðagreiðslur um tillögur á ársfundinum fara eingöngu fram með rafrænum hætti.
Kosning til stjórnar stendur yfir í eina viku fyrir fund og lýkur á ársfundardegi.
Aðrar atkvæðagreiðslur fara fram á ársfundinum sjálfum og geta sjóðfélagar sem fylgjast með í gegnum vefstreymi tekið þátt í atkvæðagreiðslum sem fara fram á ársfundinum.
Þeir sem vilja fylgjast með í gegnum vefstreymi þurfa að skrá sig fyrir kl. 17:00 á ársfundardegi og munu þeir fá sendan hlekk í tölvupósti á vefstreymið skömmu fyrir fundinn.
Sjóðfélagar eða umboðshafar þeirra sem mæta á ársfundinn eru minntir á að taka með sér skilríki með mynd og hvattir til að mæta tímanlega.
Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar á vef sjóðsins tveimur vikum fyrir ársfund.
Upplýsingar um stjórnarkosningarnar og framboðsfrest má finna hér.
Upplýsingar um rafrænar kosningar á ársfundi má finna hér.
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar
- Kynning ársreiknings
- Kynning á niðurstöðu rafrænna stjórnarkosninga
- Tryggingafræðileg athugun
- Fjárfestingarstefna sjóðsins
- Kjör endurskoðanda
- Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
- Laun stjórnarmanna
- Önnur mál
Skráning á ársfund eða vefstreymi

Upplýsingaefni
Niðurstaða stjórnarkosningar á ársfundi Frjálsa 2026
Aðalstjórn
- Hólmfríður Einarsdóttir: 16.197.885.797 og 35,52%
- Björn Ingi Victorsson: 13.018.758.609 og 28,55%
- Sigurgísli Ingimarsson: 6.999.026.733 og 15,35%
- Berglind Guðmundsdóttir: 5.928.898.974 og 13,00%
- Vala Valtýsdóttir: 3.407.272.348 og 7,47%
- Tók ekki afstöðu: 45.260.941 og 0,10%
Hólmfríður Einarsdóttir og Björn Ingi Victorsson hljóta því kosningu í aðalstjórn til næstu þriggja ára.
Varastjórn
- Vala Valtýsdóttir: 15.363.075.609 og 53,25%
- Lilja Bjarnadóttir 6.887.367.806 og 23,87%
- Tók ekki afstöðu: 6.599.211.396 og 22,87%
Vala Valtýsdóttir hlýtur því kosningu í varastjórn til næstu þriggja ára.
Stjórnarkosningar
Samkvæmt samþykktum Frjálsa skal stjórn sjóðsins skipuð sjö sjóðfélögum og þremur til vara, kosnum af sjóðfélögum.
Á þessum ársfundi rennur út kjörtímabil Önnu Sigríðar Halldórsdóttur og Björns Inga Victorssonar í aðalstjórn og Lilju Bjarnadóttur í varastjórn.
Í ljósi samsetningar þeirra stjórnarmanna sem sitja áfram í aðalstjórn hlýtur kosningu a.m.k. ein kona. Í tilfelli varamanna skal kjósa eina konu.
Upplýsingar um frambjóðendur í stjórn, sem þeir hafa sent sjóðnum, má nálgast hér fyrir neðan með því að smella á kynningarbréfið / kynningarmyndbandið.
Framboð til aðalstjórnar í stafrófsröð:
- Berglind Guðmundsdóttir - kynningarbréf / kynningarmyndband
- Björn Ingi Victorsson - kynningarbréf
- Hólmfríður Einarsdóttir - kynningarbréf / kynningarmyndband
- Sigurgísli Ingimarsson - kynningarbréf/ kynningarmyndband
- Vala Valtýsdóttir - kynningarbréf / kynningarmyndband
Framboð til varastjórnar í stafrófsröð:
- Lilja Bjarnadóttir - kynningarbréf / kynningarmyndband
- Vala Valtýsdóttir - kynningarbréf / kynningarmyndband
Rafræn kosning í stjórn
Rafræn kosning til stjórnar var opin frá kl. 17:00 miðvikudaginn 27. maí 2026 til kl. 17:00 miðvikudaginn 3. júní 2026.
Frekari aðstoð er hægt að fá hjá lífeyrisráðgjafa í síma 444-6090.
Rafrænar atkvæðagreiðslur á ársfundi
Kjör endurskoðanda, kosning um tillögur um breytingar á samþykktum og laun stjórnarmanna munu fara fram með rafrænum hætti á ársfundinum.
Smelltu hér til að kjósa á ársfundi

Sjóðfélagi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum eða Auðkennisappinu.
Niðurstaða rafrænna kosninga verður kynnt á ársfundinum.
Vefstreymi
Þeir sjóðfélagar sem vilja fylgjast með í gegnum vefstreymi þurfa að skrá sig fyrir kl. 17:00 á ársfundardegi og munu þeir fá sendan hlekk á vefstreymið skömmu fyrir fundinn.
Til upplýsinga verður ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins tekinn upp í hljóði og mynd. Sjóðfélagar, fulltrúar þeirra sem og aðrir þátttakendur geta því komið fram á slíkum upptökum. Upptökurnar fara fram og eru varðveittar í þeim tilgangi að skrá viðburðinn. Framkvæmd upptöku og varðveisla hennar felur í sér vinnslu persónuupplýsinga og er hún byggð á grundvelli lögmætra hagsmuna sjóðsins. Nánari upplýsingar um meðferð Frjálsa á persónuupplýsingum og réttindi þín má finna í persónuverndaryfirlýsingu rekstraraðila Frjálsa lífeyrissjóðsins. Sjóðfélagar og aðrir þátttakendur sem taka til máls á fundinum hafa rétt til að andmæla vinnslu persónuupplýsinga sinna, sbr. 1. mgr. 21. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Hægt er að senda andmæli til sjóðsins fyrir fundinn eða tilkynna þau á fundinum.
Umboð
Kjósi sjóðfélagi að veita öðrum einstaklingi umboð til að fara með atkvæðisrétt sinn í rafrænum kosningum vegna ársfundar sjóðsins er mælst til þess að notast sé við rafræna umboðsgjöf. Sjóðfélagi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum eða með Auðkennisappi.
Umboð gilda fyrir rafrænar kosningar til stjórnar og aðrar atkvæðagreiðslur á ársfundi. Sjóðfélagi sem hefur skráð sig inn á stjórnarkosningavefinn getur hvorki gefið umboð fyrir kosningu til stjórnar né atkvæðagreiðslur á ársfundinum sjálfum.
Rafræn umboð verða aðgengileg þegar opnar fyrir kosningar kl. 17:00 þann 27. maí 2026:
Rafrænt umboð
Geti sjóðfélagi ekki undirritað með rafrænum skilríkjum er mælst til þess að eftirfarandi form sé notað:
Skriflegt umboð
Skrifleg umboð þurfa að berast sjóðnum á netfangið arsfundur@frjalsi.is eða í móttöku Arion banka, Borgartúni 19. Kjörskrá sjóðsins er uppfærð ekki síðar en í upphafi næsta dags eftir að umboð berst sjóðnum. Skrifleg umboð þurfa að berast sjóðnum með sannanlegum hætti eigi síðar en kl. 14:15 á ársfundardegi til að umboðshafi geti nýtt atkvæðarétt sinn.
Atkvæðavægi
Atkvæðamagn sjóðfélaga fer eftir inneign þeirra í séreignarsjóði við næstliðin mánaðamót og hlutfallslegri inneign í tryggingadeild við næstliðin áramót.
Nánar er fjallað um fyrirkomulag kosninga í reglum Frjálsa lífeyrissjóðsins um framkvæmd ársfundar og rafræna atkvæðagreiðslu.
Frambjóðendur
Upplýsingasíða fyrir frambjóðendur er aðgengileg hér fyrir neðan.
Opna upplýsingasíðu fyrir frambjóðendur
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag fundarins er að finna í reglum stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins um framkvæmd ársfundar og rafræna atkvæðagreiðslu.