Skyldusparnaður

Það getur skipt miklu máli í hvaða lífeyrissjóð skylduiðgjöldin eru greidd, meðal annars vegna mismunandi réttindaávinnslu sjóðanna. Frjálsi lífeyrissjóðurinn er með eina hæstu réttindaávinnslu samtryggingasjóða. Eins býður sjóðurinn upp á þrjár mismunandi samtryggingaleiðir og úrval fjárfestingaleiða. 

Sjóðurinn er opinn öllum starfandi einstaklingum sem ekki eru bundnir skylduaðild að öðrum lífeyrissjóðum samkvæmt kjarasamningum

Þegar tekin er ákvörðun um það að sækja um aðild að Frjálsa lífeyrissjóðnum þarftu fyrst að huga að því hvaða samtryggingaleið hentar þér best.

Að því loknu, hafi samtryggingaleið þar sem hluti iðgjalds fer í séreign orðið fyrir valinu, þarf að velja fjárfestingarleið fyrir séreignina. Upplýsingar um úrval fjárfestingarleiða má finna hér.

Samtryggingaleiðir

Í Frjálsa lífeyrissjóðnum er boðið upp á þrjár samtryggingaleiðir þ.e Erfanlegu leiðina, Frjálsu leiðina og Tryggingaleiðina. Munurinn á þessum leiðum felst í því hve háu hlutfalli skylduiðgjaldsins er varið í séreign og þá hvort þar sé um að ræða frjálsa séreign eða bundna séreign.

Mikilvægt er að kynna sér allar leiðirnar til að geta tekið upplýsta ákvörðun um val á samtryggingaleið. Ef engin leið er valin verður iðgjöldum ráðstafað í Frjálsu leiðina sem er sjálfval samkvæmt samþykktum sjóðsins.

Erfanlega leiðin

Erfanlega leiðin

Kostir

Erfanlega leiðin býður upp á mestan erfanleika en 74% af skylduiðgjaldinu fer í séreign sem rennur til erfingja við andlát sjóðfélaga. Séreignin í Erfanlegu leiðinni skiptist í frjálsa séreign og bundna séreign. Um bundna séreign gilda strangari útgreiðslureglur og því er sveigjanleiki í útgreiðslum ekki jafn mikill hér og í frjálsu leiðinni.

Frjálsa leiðin

Frjálsa leiðin

Kostir

Frjálsa leiðin býður upp á mestan sveigjanleika þegar kemur að útgreiðslum. Sjóðfélagi getur haft meira fé til ráðstöfunar fyrstu árin eftir starfslok þar sem um 38% af skylduiðgjaldinu fer í frjálsa séreign en úr henni má hefja útgreiðslur eftir 60 ára aldur. Erfanleiki er þó minni en í erfanlegu leiðinni en sveigjanleiki er þeim mun meiri.

Tryggingaleiðin

Tryggingaleiðin

Kostir

Tryggingaleiðin býður hæstan ævilangan ellilífeyri af samtryggingaleiðunum þremur. Allt skylduiðgjaldið rennur í samtrygginu og því er ævilangur ellilífeyrir, örorkulífeyrir og maka- og barnalífeyrir úr samtryggingarsjóði hæstur hér. Á móti kemur að ekkert af iðgjödunum erfist ef sjóðfélagi fellur frá og sveigjanleiki er lítill.

Til baka