Spurt og svaraðSpurt og svarað um launagreiðendurTrueFalse/?PageId=d58370d2-c800-46d6-b48f-aab85eb9b381LaunagreiðendurTrueFalse/?PageId=bd888dc3-644c-410b-a526-3922897e3633
Launagreiðendur

Spurt og svarað um launagreiðendur

  • 1. Hvaða rétt á ég sem launþegi hjá Ábyrgðasjóði launa?

    Ábyrgðasjóður launa ábyrgist m.a. greiðslu á kröfu lífeyrissjóðs um lífeyrissjóðsiðgjöld sem fallið hafa í gjalddaga á síðustu 18 mánuðum fyrir úrskurðardag gjaldþrots launagreiðanda. Ábyrgðin takmarkast við greiðslu á 12% lágmarksiðgjaldi og allt að 4% viðbótariðgjaldi. Lög nr. 88/2003 um Ábyrgðasjóð launa, sem fjalla um ábyrgð á iðgjöldum vegna viðbótarlífeyrissparnaðar, tóku gildi 1. janúar 2004 og miðast því við að bú vinnuveitanda hafi verið úrskurðað gjaldþrota eftir þann tíma. Ef sjóðfélagar hafa vitneskju um að iðgjöld séu vangreidd þá verða þeir að tilkynna sjóðnum um það en slík tilkynning er forsenda þess að innheimta vangreiddra iðgjalda hefjist. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu sjóðsins.

  • 2. Þarf að greiða í lífeyrissjóð af atvinnuleysisbótum eða fæðingarorlofi?
    Greiða þarf í skyldulífeyrissparnað af öllum launum eða þóknunum sem skattskyld eru, svo sem yfirvinnu, nefndarstörfum og atvinnuleysisbótum. Hægt er að taka hlé á greiðslum í viðbótarlífeyrissparnað þegar farið er í fæðingarorlof eða við starfsmissi. Hvorki Fæðingarorlofssjóður né Vinnumálastofnun greiðir mótframlag atvinnurekanda í viðbótarlífeyrissparnað.
  • 3. Hvenær á launagreiðandi minn að standa í skilum með iðgjöldin mín?
    Iðgjöld í skyldu- og viðbótarlífeyrissparnað er á gjalddaga 10. hvers mánaðar og eindaga síðasta virka dag mánaðar. Iðgjöld eru greidd eftir á. Sem dæmi eru iðgjöld fyrir desember á gjalddaga 10. janúar.
  • 4. Hvernig greiða launþegar iðgjaldið?
    Lífeyrissparnaður er einstaklega þægilegur sparnaður því launagreiðandi sér um greiðslu iðgjaldsins. Það eina sem launþegi þarf að gera er að skrifa undir samning og sjá til þess að hann berist Arion banka/Frjálsa lífeyrissjóðnum.
  • 5. Hvernig greiða sjálfstæðir atvinnurekendur iðgjaldið?
    Sjálfstæðum atvinnurekendum er bent á að hafa samband við Lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444 7000 eða með tölvupósti í gegnum netfangið lifeyristhjonusta@arionbanki.is vegna greiðslu iðgjalda. Mælt er með beingreiðslum eða boðgreiðslum. Ef þú ert í beingreiðslum þá er skuldfært af reikningi þínum mánaðarlega, ef þú ert í boðgreiðslum þá er skuldfært af greiðslukorti þínu mánaðarlega. Mögulegt er að fá senda greiðsluseðla. Sért þú í beingreiðslum eða boðgreiðslum skalt þú ekki senda inn skilagreinar. Einnig er hægt að leggja inn á bankareikninga viðkomandi sjóða mánaðarlega en ef sú leið er farin, er nauðsynlegt að senda einnig inn skilagreinar, svo það sé á hreinu hvernig á að bóka iðgjaldið. Það er ekki hægt að skrá iðgjald fyrr en búið er að senda inn skilagrein, nema í tilfellum boð- og beingreiðslna. Skilagreinar á tölvutæku formi má senda útfylltar á skilagreinar@arionbanki.is. Einnig má senda þær í pósti til Lífeyrisþjónustu, Túngötu 3, 580 Siglufirði, eða með símbréfi í 460 1919. Rafrænar skilagreinar eru fylltar út á vefnum og berast beint til Lífeyrisþjónustu. Í stað þess að senda skilagrein með símbréfi eða pósti er nú hægt að senda hana rafrænt hvenær sólarhrings sem er. Það er ótvíræður kostur.
  • 6. Hvernig get ég fylgst með að launagreiðandi minn standi í skilum með iðgjöld?
    Upplýsingar um lífeyrissparnað Arion banka eru aðgengilegar í Netbanka Arion banka. Þar geta sjóðfélagar séð hreyfingar og stöðu ásamt útsendum yfirlitum. Sjóðfélagi getur því borið launaseðil sinn saman við upplýsingar á yfirlitum í netbankanum. Aðgangur að Netbanka Arion banka fæst í næsta útibúi bankans gegn framvísun persónuskilríkja, án skuldbindinga. Auk þess fá sjóðfélagar heimsend yfirlit tvisvar á ári.
  • 7. Hvað á ég sem launþegi að gera ef ekki er staðið í skilum með mín iðgjöld?
    Þú getur annað hvort haft samband við launagreiðanda þinn, Lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444 7000 eða Innheimtudeild á netfangið innh@arionbanki.is. Ef um vangreidd iðgjöld er að ræða getur sjóðfélagi óskað eftir að Arion banki sjái um innheimtu þeirra.
Til baka