LífeyrissjóðslánTrueFalse/?PageId=073e9310-7dce-4994-8255-c99523df8451
Lífeyrissjóðslán

Lífeyrissjóðslán

Til að fá lán hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum þurfa umsækjendur að hafa greitt að lágmarki 150.000 kr. í sjóðinn. Þeir þurfa jafnframt að hafa greitt iðgjöld í sjóðinn vegna 6 síðustu mánaða. Undanþegnir þessu skilyrði eru þeir sem þegar fá greiddan lífeyri úr sjóðnum.

Lánin eru verðtryggð jafngreiðslulán með breytilegum vöxtum. Vextir taka mið af meðalávöxtunarkröfu íbúðabréfa HFF 34 síðustu þrjá almanaksmánuði að viðbættu vaxtaálagi sem stjórn ákveður, nú 0,6 prósentustig. Vextir eru endurskoðaðir fjórum sinnum á ári, þ.e. 15. janúar, 15. apríl, 15. júlí og 15. október.

Fasteignaveð sem þarf að vera til tryggingar lánunum þarf að vera í eigu skuldara og getur veðsetning með umbeðnu láni verið allt að 65% af metnu markaðsverði íbúðarhúsnæðis. Veðsetning má þó aldrei vera hærri en 100% af brunabótamati. Ekki er lánað gegn veði í atvinnuhúsnæði og sumarhúsi. Lánin eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar. Lántakendum gefst kostur á að greiða ekki afborganir af höfuðstól fyrsta árið en þá eru einungis greiddir vextir.

Sjóðfélögum er velkomið að hafa samband við Höfðaútibú Arion banka til að fá nánari upplýsingar og aðstoð. Lánsumsóknir eru jafnframt afgreiddar í Höfðaútibúi að Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík. Sjóðfélagar utan höfuðborgarsvæðisins geta áfram leitað til útibús Arion banka í sinni heimabyggð. Spurt og svarað Lánareiknivél

 

  • Hagstæð lán hjá sjóðnum til allt að 40 ára.
  • 2,85% verðtryggðir breytilegir vextir
  • Lánstími 5-40 ár
  • Lántökugjald aðeins 0,75% af lánsfjárhæð
  • Lágmark 2 milljónir kr., hámark 20 milljónir kr.
  • Ekkert uppgreiðslugjald
  • Hægt að greiða eingöngu vexti fyrsta árið

1. Umsækjendur þurfa að hafa greitt að lágmarki 150.000 kr. í sjóðinn. Þeir þurfa einnig að hafa greitt iðgjöld í sjóðinn vegna sex síðustu mánaða en þeir sem eru byrjaðir að fá greitt úr sjóðnum eru undanþegnir þessu skilyrði.

2. Lánsfjárhæð er 2-20 milljónir. Aldrei skal heildarlánsupphæð vera hærri en svo að viðbótarlán að viðbættum eftirstöðvum eldri lána frá lífeyrissjóðnum, uppreiknuðum með verðbótum, sé hærri en 20 milljónir.

3. Lánin eru jafngreiðslulán, verðtryggð með vöxtum sem eru breytilegir og taka mið af meðalávöxtunarkröfu íbúðabréfa HFF 34 síðustu þrjá almanaksmánuði að viðbættu vaxtaálagi sem stjórn ákveður, nú 0,6 prósentustig. Vextir eru endurskoðaðir fjórum sinnum á ári, þ.e. 15. janúar, 15. apríl, 15. júlí og 15. október.

Varðandi lán sem voru gefin út fyrir 8. september 2008:

Um er að ræða lán sem eru jafngreiðslulán, verðtryggð með breytilegum vöxtum sem taka mið af almennum vöxtum verðtryggðra bankalána skv. útreikningi Seðlabanka Íslands að viðbættu vaxtaálagi / -afslætti sem stjórn ákveður. Framangreint álag / -afsláttur ákvarðast samhliða vaxtaákvörðun skv. 1. mgr. þessarar greinar þannig að vextir á lánunum verði þeir sömu og vextir sem ákvarðast skv. 1. mgr.

4. Verði skuldaraskipti á láninu og nýr skuldari er ekki sjóðfélagi hækka vextir lánsins um 1,0 prósentustig. Sama gildir ef lántakandi flytur heild eða hluta af séreign sinni úr sjóðnum.

5. Lánstími er 5-40 ár. Gjalddagar eru 2-12 á ári. Lántakendur greiða kostnað af greiðslu afborgana skv. gjaldskrá Frjálsa lífeyrissjóðsins. Boðið er upp á allt að 12 mánaða afborgunarleysi fyrsta árið en þá eru eingöngu greiddir vextir. Lánin eru uppgreiðanleg án kostnaðar hvenær sem er á lánstímanum.

6. Fasteignaveð í eigu skuldara þarf að vera til tryggingar láninu og getur veðsetning verið 65% af metnu markaðsverði íbúðarhúsnæðis. Veðsetning má þó aldrei vera hærri en 100% af brunabótamati.

7. Með umsókninni þurfa að fylgja eftirfarandi upplýsingar um íbúðarhúsnæði:

  • Nýtt veðbókarvottorð
  • Afrit af síðustu greiðslukvittunum af þeim lánum sem hvíla fyrir á eigninni.
  • Afrit af þinglýstum kaupsamningi hafi eignin skipt um eigendur á síðustu tveimur árum, eða áætlað markaðsverð að mati sérfræðings á lánaborði Viðskiptabankasviðs Arion banka eða verðmat frá löggiltum fasteignasala sem Frjálsi lífeyrissjóðurinn tilnefnir (í samráði við starfsmenn Arion banka). Lántakandi greiðir kostnað vegna verðmats frá löggiltum fasteignasala ef um það er að ræða
  • Húseignir í smíðum þurfa að vera komnar með fokheldisvottorð ásamt smíðatryggingu og kvittun fyrir greiðslu gatnagerðargjalda
  • Upplýsingar um brunabótamat og fasteignamat

Sjóðurinn getur óskað eftir að framkvæmt sé greiðslumat á lántakanda skv. reglum Arion banka sem um það gilda. Komi í ljós að skuldastaða sé með þeim hætti að vafi leiki á greiðsluhæfi lántakanda getur sjóðurinn lækkað umbeðna lánsfjárhæð eða hafnað lánveitingu.

8. Lántökugjald er 0,75% og kostnaður við útgáfu skuldabréfs er skv. gjaldskrá Frjálsa lífeyrissjóðsins.

Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skila til næsta útibús Arion banka

Þrátt fyrir ofangreindar lánareglur áskilur Frjálsi lífeyrissjóðurinn sér rétt til að hafna lánsbeiðnum.

Samþykkt á stjórnarfundi Frjálsa lífeyrissjóðsins 19. október 2011

Lífeyrissjóðslán
Lántökugjald 0,75%
Skuldabréf útbúið 1.400 kr.
Stimpilgjald (til ríkissjóðs, nema af fyrstu íbúð)  1,5% 
Þinglýsingargjald (til sýslumanns)  2.000 kr 
Uppgreiðsla lána hjá öðrum lánastofnunum (hver stofnun) 5.000 kr.
Uppgreiðsluþóknun Arion banka 5.000 kr 
Tilkynningar og greiðslugjald, greiðsluseðill sendur  - lán ekki í skuldfærslu 595 kr.
Tilkynningar og greiðslugjald, greiðsluseðill sendur - lán í skuldfærslu 220 kr
Tilkynningar og greiðslugjald, greiðsluseðill ekki sendur - lán ekki í skuldfærslu 495 kr
Tilkynningar og greiðslugjald, greiðsluseðill ekki sendur - lán í skuldfærslu 120 kr.
Innheimtuþóknun / ítrekunargjald á fyrstu ítrekun 900 kr.
Vanskilagjald á hverja ítrekun 3.000kr 

 

Til baka