Erfanlega leiðinTrueFalse/?PageId=c1dfa7a5-fde0-4962-9d80-ea3197c53e3aSkyldusparnaðurTrueFalse/?PageId=0b78d52e-7b0e-4e55-a5a6-b880f07fbf5b
Skyldusparnaður

Erfanlega leiðin

Erfanlega leiðin er ein af þremur samtryggingarleiðum Frjálsa lífeyrissjóðsins. Við inngöngu í sjóðinn velur þú þá samtryggingarleið sem hæfir best markmiðum þínum, einnig er hægt að breyta um samtryggingarleið síðar. 

Erfanlega leiðin býður upp á mestan erfanleika en 74% af skylduiðgjaldinu fer í séreign sem rennur til erfingja við andlát sjóðfélaga. Séreignin í Erfanlegu leiðinni skiptist í frjálsa séreign og bundna séreign. Um bundna séreign gilda strangari útgreiðslureglur og því er sveigjanleiki í útgreiðslum ekki jafn mikill hér og í Frjálsu leiðinni. 

Lífeyrisgreiðslur til sjóðfélaga eru að jafnaði lægri fram að 85 ára aldri en í Frjálsu leiðinni og Tryggingaleiðinni. Ástæðan er sú að kostnaður við að tryggja sjóðfélögum ævilangan ellilífeyri er meiri en í hinum leiðunum vegna þess að hærra hlutfall iðgjalda erfist í Erfanlegu leiðinni.

Ef þú velur Erfanlegu leiðina sem þína samtryggingarleið er næsta skref að skoða fjárfestingaleiðir fyrir séreignina þína. Sjá fjárfestingarleiðir

Breyting á samtryggingarleið

Sækja um Spurt og svaraðLífeyrisreiknivél

Fyrir hverja

  • Fyrir þá sem vilja hámarks erfanleika á lífeyrisiðgjöldin sín
  • 74% iðgjaldsins rennur í séreign sem erfist að fullu við fráfall sjóðfélaga
  • Fyrir þá sem vilja meiri sveigjanleika í útgreiðslum en tíðkast í hefðbundnum lífeyrissjóðum

Markmið

  • Hámarka erfanleika á iðgjöld sjóðfélaga en ná um leið góðum ævilöngum ellilífeyri
  • Bjóða upp á meiri sveigjanleika í útgreiðslum en tíðkast í hefðbundnum lífeyrissjóðum

12% skylduiðgjaldið skiptist þannig:


Um 20% af iðgjaldinu fara í frjálsa séreign en úr henni má hefja útgreiðslur eftir 60 ára aldur og erfist hún að fullu.

Um 54% af iðgjaldinu fara í bundna séreign sem tryggir mánaðarlegan ellilífeyri frá töku hans til 85 ára aldurs. Bundin séreign erfist að fullu. Heimilt er að flýta töku bundinnar séreignar til 60 ára aldurs og að sama skapi má fresta töku bundinnar séreignar um allt að 5 ár.

Um 26% af iðgjaldinu fara í samtryggingarsjóð sem tryggir ellilífeyri frá 85 ára aldri til æviloka, örorkulífeyri til 70 ára aldurs, makalífeyri við fráfall og barnalífeyri við örorku og fráfall.

Til baka