Frjálsa leiðin er ein af þremur samtryggingarleiðum Frjálsa lífeyrissjóðsins. Við inngöngu í sjóðinn velur þú þá samtryggingarleið sem hæfir best markmiðum þínum, einnig er hægt að breyta um samtryggingarleið síðar.
Frjálsa leiðin er fyrir þá sem vilja sveigjanleika við útgreiðslu, þ.e. hafa meira fé til ráðstöfunar fyrstu árin eftir starfslok. Í Frjálsu leiðinni erfist lægra hlutfall iðgjalda en í Erfanlegu leiðinni og ævilangur ellilífeyrir úr samtryggingarsjóði er lægri en í Tryggingaleiðinni.
Heimilt er að hefja töku á frjálsri séreign við 60 ára aldur en greiðsla ellilífeyris úr samtryggingarsjóði hefst við 70 ára aldur og stendur til æviloka.
Ef þú velur Frjálsu leiðina sem þína samtryggingarleið er næsta skref að skoða fjárfestingaleiðir fyrir séreignina þína. Sjá fjárfestingaleiðir
Fyrir hverja
| Markmið
|