Í Netbanka Arion banka getur þú fylgst með inneign og stöðu lífeyrisréttinda þinna í Frjálsa lífeyrissjóðnum, hvenær sem er. Þar eru einnig nýjustu upplýsingar um innborganir og er mikilvægt að bera yfirlitið saman við launaseðla til að ganga úr skugga um að gerð hafi verið skil á öllum iðgjöldum og þau bókuð í rétta fjárfestingarleið.
Ef iðgjaldagreiðslur vantar á yfirlitið eða þú hefur aðrar athugasemdir viljum við biðja þig um að hafa samband við launagreiðanda þinn eða Lífeyrisþjónustu Arion banka á netfangið lifeyristhjonusta@arionbanki.is eða í síma 444 7000.
Þú getur óskað eftir aðgangi að Netbankanum í næsta útibúi Arion banka gegn framvísun persónuskilríkja.
Í Netbankanum gefst sjóðfélögum kostur á að breyta forsendum lífeyrissamnings á rafrænan hátt, án undirritunar eyðublaða. Þar er hægt að breyta fjárfestingarleið, samtryggingarleið og prósentu viðbótariðgjalds auk þess sem hægt er að tilkynna um nýtt heimilisfang og nýjan launagreiðanda.
Til baka