TryggingaleiðinTrueFalse/?PageId=b933eba9-a49b-4f01-b063-2f2f6b47e5cbSkyldusparnaðurTrueFalse/?PageId=0b78d52e-7b0e-4e55-a5a6-b880f07fbf5b
Skyldusparnaður

Tryggingaleiðin

Tryggingaleiðin er ein af þremur samtryggingarleiðum Frjálsa lífeyrissjóðsins. Við inngöngu í sjóðinn velur þú þá samtryggingarleið sem hæfir best markmiðum þínum, einnig er hægt að breyta um samtryggingarleið síðar.

Tryggingaleiðin er fyrir þá sem vilja hærri ævilangan ellilífeyri, örorkulífeyri og maka- og barnalífeyri úr samtryggingarsjóði. Iðgjöldin mynda ekki séreign og því er ekki um erfanleika að ræða eins og í hinum samtryggingarleiðunum. Sækja um Spurt og svaraðLífeyrisreiknivél

Fyrir hverja

  • Fyrir þá sem vilja háan ævilangan ellilífeyri
  • Hærri örorku-, maka- og barnalífeyri

Markmið

  • Góð réttindaávinnsla
  • Hár ævilangur ellilífeyrir

12% skylduiðgjaldið skiptist þannig:

Allt iðgjaldið fer í samtryggingu sem tryggir ellilífeyri frá 67 ára aldri til æviloka, örorkulífeyri til 67 ára aldurs, makalífeyri við fráfall og barnalífeyri við örorku og fráfall. Heimilt er að flýta töku ellilífeyris til 60 ára aldurs og að sama skapi má fresta töku elllilífeyris um allt að 5 ár. Flýting/frestun hefur áhrif til lækkunar/hækkunar á áætluðum ellilífeyrisgreiðslum.
Til baka