Samþykktir Frjálsa lífeyrissjóðsins sem voru samþykktar á ársfundi sjóðsins
13. apríl sl. hafa nú verið staðfestar af fjármálaráðuneytinu. Samþykktirnar
tóku gildi þann 1. júlí.
Rétt er að vekja athygli á því að í nýjum samþykktum er að finna viðauka
(bls. 13) varðandi ákvörðun stjórnar um breytta aðferð við lækkun réttinda og
lífeyris sjóðfélaga skv. gr. 6.5 miðað við það sem ársfundur sjóðsins samþykkti
árið 2010: Lífeyrisréttindi áunnin 2010 og fyrr, og lífeyrir sem byggist á
réttindum sem aflað var 2010 og fyrr, verða lækkuð um 0,75% mánaðarlega næstu 12
mánuði eftir að gildistaka ákvörðunar hefur hlotið staðfestingu
fjármálaráðuneytisins eða þar til jafnvægi næst á milli eigna og áfallinna
skuldbindinga sjóðsins, verði það fyrr.
Réttindi sem myndast vegna greiðslu iðgjalda frá og með 1. janúar 2011 og lífeyrisgreiðslur vegna sömu réttinda munu hinsvegar ekki lækka.
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins sem haldinn var 24. júní 2010 samþykkti mánaðarlega lækkun á réttindum sem nam mánaðarlegri hækkun á vísitölu neysluverðs, en sú aðferð hlaut ekki staðfestingu fjármálaráðuneytisins. Því ákvað stjórn sjóðsins nú að fara þá leið sem líst er hér að ofan. Lækkun réttinda er gerð í ljósi halla á tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins. Rétt er að hafa eftirfarandi þætti í huga sem hafa haft áhrif á tryggingafræðilega stöðu sjóðsins:
Um síðustu áramót var hlutfall heildareigna á móti heildarskuldbindingum samtryggingarsjóðs (heildarstaða) neikvætt um 6,9% en hlutfall eigna umfram áfallnar skuldbindingar neikvætt um 17,8%. Sjóðurinn er innan lögbundinna marka og ber ekki skylda til að grípa til aðgerða. Það er hinsvegar mat stjórnar sjóðsins að skynsamlegt sé að bregðast við til að leita jafnvægis í tryggingafræðilegri stöðu, en Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur ekki áður lækkað réttindi sjóðfélaga líkt og fjölmargir aðrir lífeyrissjóðir hafa gert árin eftir bankahrunið.
Til baka07.05.2012 08:26
27.04.2012 17:04
24.04.2012 13:56
20.04.2012 13:27
16.04.2012 14:35
Framboðsfrestur til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins rennur út miðvikudaginn 18. apríl nk.
15.04.2012 11:03
11.04.2012 16:19
04.04.2012 15:01
02.03.2012 15:17
09.02.2012 15:28
07.02.2012 15:41
03.02.2012 10:41
01.02.2012 14:14
31.01.2012 13:41
16.01.2012 09:43
20.12.2011 14:08
16.12.2011 09:40
03.11.2011 13:42
27.10.2011 13:05
20.10.2011 15:42
20.10.2011 13:05
17.10.2011 15:00
10.10.2011 15:02
29.09.2011 10:50
Heimild til fyrirframgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar hækkar
24.08.2011 10:50
Lögfesting á greiðsluskyldu launagreiðenda til VIRK frá og með 1. september næstkomandi
02.08.2011 10:50
25.07.2011 10:50
15.04.2011 19:33
15.04.2011 15:03
07.04.2011 15:05
04.04.2011 15:06
Framboðsfrestur til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins rennur út miðvikudaginn 6. apríl nk.
01.04.2011 15:06
22.03.2011 15:07
04.02.2011 15:10
13.01.2011 15:12