Með lögum sem samþykkt voru á síðasta vorþingi var kveðið á um skyldu
launagreiðenda til þess að skila 0,13% af iðgjaldastofni til VIRK
Starfsendurhæfingarsjóðs vegna allra starfsmanna sinna. Fram að þessum tíma
hefur einungis verið kveðið á um greiðsluskyldu í kjarasamningum en nú nær hún
til allra launamanna skv. lögum, þ.m.t. sjálfstæðra atvinnurekenda og þeirra sem
ekki eru félagsmenn stéttafélaga.
Launagreiðandi skal standa skil á
iðgjaldi vegna VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs með sama hætti og gildir um
lífeyrisiðgjöld og greiða samhliða til viðeigandi lífeyrissjóðs. Í samræmi við
þessa lagasetningu munu allir starfandi einstaklingar tryggja sér rétt til
starfsendurhæfingar og njóta til þess þjónustu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs.
Nánari upplýsingar um þjónustu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs má finna á
heimasíðu VIRK, www.virk.is.
Upplýsingar frá VIRK varðandi lögfestingu
á iðgjaldi til launagreiðenda eru í mefylgjandi skjali:
Um er að ræða breytingu á lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu
lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og er málsgreinin um iðgjald
launagreiðenda til VIRK svohljóðandi:
"Iðgjald launagreiðanda, þ.m.t.
þeirra sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, til VIRK
Starfsendurhæfingarsjóðs skal vera 0,13% af iðgjaldsstofni skv. 1. mgr. 3. gr.
og skal reiknast í fyrsta sinn af iðgjaldsstofni septembermánaðar 2011.
Iðgjaldið veitir réttindi til þjónustu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs.
Launagreiðanda skv. 1. málsl. er skylt að standa skil á iðgjaldinu til
viðkomandi lífeyrissjóðs með sama hætti og gildir um lífeyrisiðgjald, sbr. 2.
mgr. 7. gr. Lífeyrissjóðir ráðstafa iðgjaldinu til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs
og skal fara eftir þeim ákvæðum sem almennt gilda í þeim innheimtusamningum sem
gerðir hafa verið milli aðila."
Fram til þessa hefur Frjálsi
lífeyrissjóðurinn ekki tekið við greiðslu iðgjalds til VIRK, en frá og með 1.
september mun sjóðurinn hinsvegar taka við þessum iðgjöldum í samræmi við
breytingu á lögum. Rétt er einnig að benda á að það eru iðgjöld vegna september
sem mynda í fyrsta sinn andlag til útreiknings á umræddu gjaldi.
07.05.2012 08:26
27.04.2012 17:04
24.04.2012 13:56
20.04.2012 13:27
16.04.2012 14:35
Framboðsfrestur til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins rennur út miðvikudaginn 18. apríl nk.
15.04.2012 11:03
11.04.2012 16:19
04.04.2012 15:01
02.03.2012 15:17
09.02.2012 15:28
07.02.2012 15:41
03.02.2012 10:41
01.02.2012 14:14
31.01.2012 13:41
16.01.2012 09:43
20.12.2011 14:08
16.12.2011 09:40
03.11.2011 13:42
27.10.2011 13:05
20.10.2011 15:42
20.10.2011 13:05
17.10.2011 15:00
10.10.2011 15:02
29.09.2011 10:50
Heimild til fyrirframgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar hækkar
24.08.2011 10:50
Lögfesting á greiðsluskyldu launagreiðenda til VIRK frá og með 1. september næstkomandi
02.08.2011 10:50
25.07.2011 10:50
15.04.2011 19:33
15.04.2011 15:03
07.04.2011 15:05
04.04.2011 15:06
Framboðsfrestur til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins rennur út miðvikudaginn 6. apríl nk.
01.04.2011 15:06
22.03.2011 15:07
04.02.2011 15:10
13.01.2011 15:12