Saga sjóðsinsTrueFalse/?PageId=fae8f28c-91df-4371-91ca-771bcce8503eUm sjóðinnTrueFalse/?PageId=3a690860-f207-4fa6-a93f-fe14d331521b
Um sjóðinn

Saga sjóðsins

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er elsti frjálsi lífeyrissjóður landsins. Hlutverk sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum sínum ellilífeyri til æviloka og veita þeim tryggingu sem ver þá og fjölskyldur þeirra gegn tekjumissi af völdum örorku og andláts.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn var stofnaður árið 1978 og er einn fyrsti lífeyrissjóðurinn sem stofnaður er utan stigasöfnunar. Frjálsi lífeyrissjóðurinn var settur á laggirnar af Fjárfestingarfélagi Íslands. Á eftir Fjárfestingarfélaginu sáu Scandia á Íslandi, Fjárvangur og Frjálsi fjárfestingarbankinn um rekstur sjóðsins fram til ársins 2000 en þá tók Kaupþing við rekstri sjóðsins, nú Arion banki.

Saga Frjálsa lífeyrissjóðsins

  • 1978 Frjálsi lífeyrissjóðurinn stofnaður
  • 1994 Lífeyrissjóðurinn Eining stofnaður
  • 1999 Lífeyrissjóður leikara sameinast Lífeyrissjóðnum Einingu
  • 1999 Lsj. iðnaðarmanna á Suðurnesjum sameinast Lsj. Einingu
  • 1999 FISK - Félag ísl. stjórnunarstarfsmanna á Keflavíkurflugvelli sameinast Lsj. Einingu
  • 2002 Lífeyrissjóðurinn Eining sameinast Frjálsa lífeyrissjóðnum
  • 2004 Séreignalífeyrissjóðurinn sameinast Frjálsa lífeyrissjóðnum
  • 2006 Lífeyrissjóður Bolungarvíkur sameinast Frjálsa lífeyrissjóðnum
  • 2010 Séreignarsjóður Lífís sameinast Frjálsa lífeyrissjóðnum

Frjálsi lífeyrissjóðurinn var upphaflega án skuldbindinga frá ríkisvaldinu. Allar greiðslur sem í hann runnu mynduðu séreign og voru sjóðfélagar ekki bundnir af útgreiðslureglum. Með tilkomu laga nr. 129/1997 var sjóðurinn svo skyldaður til þess að koma á tryggingadeild og standa undir lágmarkstryggingavernd.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er aldurstengdur lífeyrissjóður sem reiknar réttindi út frá réttindatöflum. Allar greiðslur sem bárust í sjóðinn fyrir 1. júlí 1999 runnu í frjálsa séreign, en greiðslur sem borist hafa í sjóðinn eftir þann tíma renna í þá samtryggingarleið sem sjóðfélagi hefur valið.

Í dag eru þrjár samtryggingarleiðir og fjórar fjárfestingarleiðir, auk Ævilínu í boði í Frjálsa lífeyrissjóðnum. Með þessu fjölbreytta úrvali leiða ættu allir að geta fundið einhverja við sitt hæfi.

Besti lífeyrissjóður á Íslandi 2010

Í desember 2010 var Frjálsi lífeyrissjóðurinn valinn besti lífeyrissjóður á Íslandi annað árið í röð af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE).

Í umsögn dómnefndar kemur meðal annars fram að eignastýring Frjálsa lífeyrissjóðsins hafi gengið vel þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður. Jafnframt hafi sjóðurinn aukið gagnsæi í fjárfestingum og eflt samskipti við sjóðfélaga til að upplýsa þá sem best um stöðu sjóðsins. IPE er eitt virtasta fagtímarit Evrópu um lífeyrismál. Árlega veitir tímaritið þeim lífeyrissjóðum verðlaun sem að mati sérfræðinga IPE hafa skarað fram úr í sínu heimalandi og í Evrópu.

Besti lífeyrissjóður á Íslandi 2009

Í nóvember 2009 var Frjálsi lífeyrissjóðurinn valinn besti lífeyrissjóður á Íslandi á árlegri verðlaunahátíð á vegum fagtímaritsins Investment Pension Europe (IPE). Einnig var sjóðurinn þess heiðurs aðnjótandi að vera valinn næstbesti lífeyrissjóður í Evrópu af lífeyrissjóðum sem eru minni en 1 milljarður evra (183 milljarðar kr.)

Í umsögn dómnefndar segir m.a. að Frjálsa lífeyrissjóðnum hafi tekist að vernda hagsmuni sjóðfélaga við erfiðar markaðsaðstæður með því að minnka áhættu sjóðsins í fjárfestingum og einnig er vakin athygli á uppbyggingu sjóðsins og auknu gagnsæi.

Besti lífeyrissjóður Evrópu 2005

Í nóvember 2005 var Frjálsi lífeyrissjóðurinn valinn besti evrópski lífeyrissjóðurinn í þemaflokknum Uppbygging lífeyrissjóða í árlegri keppni á vegum tímaritsins IPE, Investment & Pensions Europe. Með þessu vali var Frjálsa lífeyrissjóðnum skipað á bekk með mörgum af stærstu og best reknu lífeyrissjóðum Evrópu á undanförnum árum.

Verðlaun í flokknum Uppbygging lífeyrissjóða (DB/DC structuring/strategies) þóttu ein eftirsóknarverðustu þemaverðlaun IPE-keppninnar. Frjálsi lífeyrissjóðurinn varð hlutskarpastur í þessum flokki fyrir að sameina kosti séreignar- og sameignarsjóða, bjóða upp á valfrelsi fyrir sjóðfélaga og nota fagleg vinnubrögð við ávöxtun eigna og mótun fjárfestingarstefnu.

Til baka