Frjálsi lífeyrissjóðurinn býður upp á fjölbreytt úrval fjárfestingarleiða með mismikilli áhættu til að mæta ólíkum þörfum sjóðfélaga og því getur þú valið þá fjárfestingarleið sem þér hentar. Við val á fjárfestingarleið er m.a. ráðlegt að huga að því hve langt er í útgreiðslu, hver eignastaða þín er og hvert viðhorf þitt er til áhættu.
Við inngöngu í Frjálsa lífeyrissjóðinn velur þú þá fjárfestingarleið sem hæfir best markmiðum þínum, hvort sem um er að ræða skyldu- eða viðbótarlífeyrissparnað. Ef engin leið er valin er gert ráð fyrir að fjárfestingum verði háttað samkvæmt Ævilínu.
Í Ævilínu færist inneign þín sjálfkrafa á milli fjárfestingarleiða og þannig minnkar áhætta eignasafnsins eftir aldri.

Í Frjálsa 1 er hlutfall hlutabréfa hæst af þeim leiðum sem eru hluti af Ævilínu og má búast við í sögulegu ljósi að langtímaávöxtun verði hærri en að sama skapi eru meiri líkur á sveiflum í ávöxtun til skemmri tíma. Frjálsi 1 er því áhættumesta leiðin af þeim leiðum sem eru hluti af Ævilínu.

Í Frjálsa 2 er hlutfall skuldabréfa hæst og má því búast við að langtímaávöxtun verði jafnari í Frjálsa 2 en í Frjálsa 1.

Í Frjálsa 3 er reynt að lágmarka sveiflur í ávöxtun með því að hafa 75% safnsins í stuttum skuldabréfum og 25% í innlánum.

Í Frjálsa Áhættu er hlutfall hlutabréfa og hlutabréfatengdra afurða hæst og má því búast við að langtímaávöxtun verði hærri en að sama skapi eru meiri líkur á sveiflum í ávöxtun. Frjálsi Áhætta er áhættumesta leiðin eins og nafnið gefur til kynna. Frjálsi Áhætta er ekki hluti af Ævilínu. Vegna núverandi gjaldeyrishafta er nú óheimilt að kaupa erlendar eignir fyrir iðgjöld rétthafa og því ekki hægt að bjóða nýjum rétthöfum upp á þessa fjárfestingarleið né að leyfa flutninga yfir í hana.