Reglur FrjálsaReglur Frjálsa um viðbótarlífeyrirTrueFalse/?PageId=eb8d0334-9f12-497d-9a67-3d7a8ed9c314ViðbótarsparnaðurTrueFalse/?PageId=5b142fc7-0241-43e9-b46c-6081099e655a
Viðbótarsparnaður

Reglur Frjálsa um viðbótarlífeyrir

  • 1. Vörslusamningar um lífeyrissparnað
    Reglur þessar taka til samninga um lífeyrissparnað sem stofnað er til á grundvelli II. kafla laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyris­rétt­inda og starfsemi lífeyrissjóða. Allir þeir sem uppfylla ákvæði fyrr­greindra laga um greiðslu iðgjalds til lágmarks­tryggingarverndar hjá líf­eyrissjóði geta greitt viðbótariðgjald í Frjálsa lífeyrissjóðinn. Með undir­ritun rétthafa á samningi Frjálsa lífeyrissjóðsins samþykkir hann að hlíta reglum þessum.
  • 2. Skil á samningi til launagreiðanda
    Þegar samningur hefur komist á um lífeyrissparnað skal Frjálsi lífeyris­sjóðurinn senda launagreiðanda afrit af samningnum.
  • 3. Iðgjaldagreiðslur
    Iðgjöld skulu greiðast mánaðarlega. Gjalddagi iðgjalda­greiðslu­tímabils er tíundi næsta mánaðar. Eindagi skal vera síðasti dagur sama mánað­ar og iðgjald fellur í gjalddaga. Í samningi skal fjárhæðin tilgreind í krónum eða sem hlutfall af launum. Iðgjaldagreiðslur skulu hefjast eigi síðar en 2 mánuðum eftir undirritun samnings. Iðgjöld greiðast með þeim hætti sem samningur kveður á um, nema gerður sé sérstakur samningur um annað fyrirkomulag síðar. Frjálsa lífeyrissjóðnum ber að ávaxta greitt iðgjald samkvæmt samningi þessum frá þeim degi er sjóðnum berst iðgjald vegna rétthafa. Berist skila­grein frá launagreiðanda síðar en iðgjöld, er Frjálsa lífeyrissjóðnum skylt að reikna vexti frá skráningardegi skilagreinar í samræmi við þá fjárfestingarleið sem í gildi er samkvæmt samningi, enda geti sjóðurinn ekki áður sérgreint fé rétthafa sem launagreiðandi greiðir iðgjald fyrir. Iðgjald skal bera sömu vexti og Fjárhæðarþrep Arion banka hf. hverju sinni frá þeim tíma sem það berst vörsluaðila þar til skilagrein er skráð.
  • 4. Ráðstöfun iðgjalds
    Í samningi ákveður rétthafi hvernig iðgjaldi hans skuli ráðstafað til ávöxtunar í fjárfestingarleið með fyrirfram ákveðinni fjár­festingar­stefnu. Heimilt er að ráðstafa hluta iðgjalds til kaupa á líf- eða heilsu­tryggingum. Um greiðslu vátryggingabóta fer skv. 7. gr. reglna þess­ara. Þar til bætur eru greiddar út skulu þær ávaxtaðar í samræmi við fjárfestingarleið er rétthafi hefur valið. Rétthafi getur ávallt breytt ákvörðun sinni vegna framtíðariðgjalda með skrif­legri tilkynningu til Frjálsa lífeyrissjóðsins.
  • 5. Fjárfestingarleiðir
    Rétthafar Frjálsa lífeyrissjóðsins geta valið á milli mismunandi fjár­festingar­leiða til að ávaxta innstæðu sína. Ávöxtunar­mögu­leik­arnir eru nokkrir sem felst nánar tiltekið í því að í boði er mis­mun­andi hlutfall hlutabréfa í safni á móti öðrum fjármálagerningum, s.s. skuldabréfum og víxlum, sem og innlánum í bönkum og sparisjóðum. Rétthafar geta flutt inn­stæðu sína á milli fjárfestingarleiða. Kostnaður við flutninginn skal vera skv. gildandi gjaldskrá Arion banka hf. á hverjum tíma en að hámarki 1% af inneign rétthafa. Jafnframt geta rétthafar valið að færast sjálfkrafa milli þessara fjárfestingarleiða skv. Ævilínu eftir fyrir­fram ákveðnum reglum sem eru að finna í samþykktum sjóðs­ins. Í þeim tilvikum sem fjárfest er í erlendum myntum er stefnan að nota gjaldeyrisvarnir með því markmiði að draga úr áhættu af gengis­breyt­ingum erlendra gjaldmiðla. Frjálsi lífeyrissjóður­inn hefur falið Arion banka hf. að annast eignastýringu skv. stefnu sjóðsins, en er heimilt að úthýsa eignastýringunni til Stefnis hf.
  • 6. Ráðstöfun iðgjalda við nýjan samning
    Ef fyrir liggur samningur við rétthafa um sama efni eða ef iðgjöld rétthafa hafa borist án þess að samningur hafi verið gerður þá kemur nýjasti samn­ingur rétthafa í stað eldri samnings eða eldra fyrirkomulags. Þ.e. framtíðar­iðgjöldum allra launagreiðenda verður ráðstafað samkvæmt nýjasta samningi rétthafa. Velji rétthafi Ævilínu en á uppsafnaða inneign í annarri fjárfestingar­leið, þá mun hún við valið flytjast í þá fjárfestingarleið sem tilheyrir Ævilínu og fylgja henni. Þó verður inneign í Frjálsa 3 ekki flutt samkvæmt þessu. Velji rétthafi hins vegar aðra fjárfestingarleið en Ævilínu en á upp­safnaða inneign í Ævilínu, þá mun hún við valið sitja eftir í þeirri fjár­festingarleið sem tilheyrir Ævilínu en mun framvegis ekki verða flutt sam­kvæmt reglum um Ævilínu.
  • 7. Útborgun sparnaðar
    Útborgun sparnaðar getur aðeins komið til vegna aldurs, örorku eða andláts rétthafa. Rétthafi getur hafið úttekt á innstæðu eða gert sér­stakan útborgunarsamning 2 árum eftir fyrstu greiðslu iðgjalds. Þegar rétthafi er orðinn 60 ára er heimilt að greiða út lífeyrissparnað ásamt vöxtum. Deyi rétthafi áður en innstæða er að fullu greidd út fellur hún til erfingja hans og skiptist milli þeirra eftir reglum erfðalaga. Láti rétthafi ekki eftir sig maka eða barn, rennur innstæðan til dánarbúsins og gildir þá ekki takmörkunin í 2. ml. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 129/1997. Verði rétthafi öryrki og orkutapið sem hann verður fyrir er 100% á hann rétt á að fá lífeyrissparnað og vexti greidda út með jöfnum árlegum greiðslum á 7 árum. Árleg útborgun lækkar og úttektar­tími lengist í hlutfalli við lækkun örorkuprósentu, sbr. 3. mgr. 11. gr. laga nr. 129/1997. Útborgun getur í fyrsta lagi hafist þegar vottorð um örorku og orkutap liggja fyrir. Ef innstæða rétthafa sem orðið hefur fyrir orkutapi er undir kr. 500.000 þegar að útgreiðslu kemur er hún greidd út í eingreiðslu, sé þess óskað. Viðmiðunarfjárhæð þessi breytist árlega í hlut­falli við breytingu á vísitölu neysluverðs miðað við grunnvísitölu 173,5 stig. Unnt er að semja um annan og lengri útborgunartíma en greinir hér fyrir ofan. Með jöfnum greiðslum hér fyrir framan er átt við greiðslur að tiltölu við fjölda greiðsluára þannig að rétthafi fái á hverju ári þann hluta inn­stæð­unnar að meðtöldum vöxtum sem samsvarar tölu þeirra ára sem eftir standa af endurgreiðslutímanum.
  • 8. Uppsögn samnings
    Undirritun rétthafa á samninginn skuldbindur hann ekki fyrr en fjórtán dögum frá gerð samningsins og er rétthafa heimilt að falla frá samningi innan þess frests. Samningi þessum er hægt að segja upp með tveggja mán­aða fyrirvara. Uppsögn skal vera skrifleg og undirrituð af rétthafa. Upp­sögn veitir ekki rétt til útborgunar inn­stæðu. Hætti iðgjöld vegna rétt­hafa að berast til Frjálsa lífeyrissjóðsins af einhverjum ástæðum, verð­ur innstæðan ásamt vöxtum ávöxtuð áfram hjá sjóðnum og greidd út skv. útborgunarreglum 7. gr.
  • 9. Flutningur milli vörsluaðila
    Heimilt er að flytja innstæðu til annarra vörsluaðila sem geta boðið samninga af þessu tagi, sbr. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 129/1997, óski rétthafi eftir því við Frjálsa lífeyrissjóðinn með skriflegri tilkynningu. Flutningurinn skal eiga sér stað innan tveggja mánaða frá móttöku flutnings­beiðni frá rétthafa. Kostn­aður vegna flutnings ræðst af rekstrar­samn­ingi sem gerður er milli Frjálsa lífeyrissjóðsins og rekstrar­aðila, að há­marki 1% af inneign rétthafa en að lágmarki 5.000 kr.
  • 10. Framsal réttinda
    Rétthafa er óheimilt að framselja, veðsetja eða á annan hátt ráðstafa inn­stæðu eða réttindum skv. samningi um aðild að Frjálsa lífeyris­sjóðn­um, nema samkvæmt 1.-3. tl. 3. mgr. 14. gr. laga nr. 129/1997.
  • 11. Breyting á reglum
    Frjálsa lífeyrissjóðnum er heimilt að breyta reglum þessum að undan­gengnu sam­þykki fjármálaráðherra.
  • 12. Innheimta
    Ábyrgð á skilum launagreiðanda á afdregnum iðgjöldum lífeyris­sparn­aðar er hjá rétthafa. Óski rétthafi eftir aðstoð Frjálsa lífeyrissjóðs­ins við innheimtu vangoldinna iðgjalda skal tilkynning þess efnis berast með skriflegum hætti til sjóðsins ásamt launaseðlum sem sýna afdreg­in ið­gjöld. Við gjaldþrot launagreiðanda ábyrgist Ábyrgðasjóður launa kröf­ur um vangoldin iðgjöld sem fallið hafa í gjalddaga að ákveðnum skil­yrðum uppfylltum, sbr. III. kafla reglugerðar nr. 462/2003, um Ábyrgðasjóð launa, sem er að finna á www.arionbanki.is/lifeyrir.
Til baka