Frjálsi lífeyrissjóðurinn er elsti frjálsi lífeyrissjóður landsins, stofnaður árið 1978. Í sjóðnum eru um 40.000 sjóðfélagar og eignir eru um 90 milljarðar króna. Sjóðurinn er opinn öllum starfandi einstaklingum sem ekki eru bundnir skylduaðild að öðrum lífeyrissjóðum samkvæmt kjarasamningum. Frjálsi lífeyrissjóðurinn tekur einnig á móti viðbótarlífeyrissparnaði í séreignarsjóð.
Eignastýring Arion banka annast rekstur og eignastýringu Frjálsa lífeyrissjóðsins.